Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 763 dögum
Danmark beibí... :D
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 434 dögum
Rósin verður 28 ára... ;)
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 20121
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
23.12.2009 13:45:49 / Yrja82

Jólin koma, jólin koma... :D

Uss... yndislegt er þetta... :)
Það er Þorláksmessa og eins og við flest vitum þá þýðir það að aðfangadagur er á morgun...
...SPENNANDI.. :haha:

Rjúpurnar hans Sigurjóns eru löngur komnar í hús og bíða þess í eftirvæntingu að það verði reytt af þeim fiðrið og eldaðar...
Ég tek kalkúnabringuna mína út úr frystinum á eftir... 
alveg laus við að reyta nokkuð... 

Það verður að segjast eins og er að mér finnst alveg ferlega krípí að vera með heila fugla inn í frystinum mínum...
Alveg bara með fiðri, goggum og öllu... 
Doldið annað þegar ég þarf ekki að horfast í augu við matinn skiljiði...?!?!?!?! 

En já... :)
Það er óhætt að segja að það hafi mikið gengið á undanfarið...!!
Lífið er allskonar og það hefur einmitt verið akkuratt það í mínu lífi síðustu vikuna...
Það fallega við það þegar mikið gengur á er reynslan og þroskinn sem maður öðlast... 
Allri reynslu fylgir vöxtur ef maður kýs það og þegar maður er jákvæða og glaðværa fólkið þá kýs maður akkuratt það... :)
Yndislegt...!! :)

Í gær fór ég og keypti mér jóladress og ætla leggja lokahönd á þau innkaup í dag... :) 
Svo er ferðinni heitið í smá leiðangur fyrir danska fólkið og síðast í Bónus í meðlætisinnkaup... 
Ég á eftir að pakka inn nokkrum pökkum sem komast á leiðarenda í dag eða morgun og þá mega jólin koma...!!:)

Ég og minn heittelskaði verðum bara tvö á morgun og förum í messu áður en við borðum...
Ætlum að hafa það voða notalegt saman og opna bara pakkana frá hvoru öðru...
...Fallegt... :)
Svo verður brugðið sér af bæ og kíkt í heimsóknir til annara fjölskyldumeðlima... 
Stelpurnar koma svo báðar á jóladag og þá höldum við önnur jól... :)
Gaman, gaman...!! :)
 
Á annan í jólum fljúgum við af landi brott og í danska veldið...
Ohh hvað ég hlakka til...!!:haha:
Og daginn eftir að við lendum höldum við upp á þriðju jólin...
Híhí... jóla, jóla..:haha:
Vá hvað ég hlakka til að vera með öllum systkinum mínum og mömmu og pabba á jólunum... 
hélt að það yrði ekkert sollis þessi jólin...
Svo er líka svo spennandi og skemmtilegt að þau ertu að fara að hitta Sigurjón og Ástu í fyrsta skiptið...:)
Þetta er víst svona þegar fjölskylda manns býr í öðru landi...;)

En já...
þetta er orðið gott í bili...
Hver veit nema ég hendi inn smá bloggi af danskri grund... :)

Gleðileg jól elskurnar og hafið það stórkostlegt...!!
Verum góð hvert við annað...!! :)

Rósin kveður

...þakklát og í jólaskapi... :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2009 01:23:27 / Yrja82

Bloggað í Jólafíling... ;)

Aaaaallt fallega fólkið...:)
Nú er töluvert síðan síðast og kominn tími á update...
Ef þið bara vissuð hvað ég er að gera núna...
já ok... ætla ekkert að vera að halda ykkur lengi í spennu...
Ég er nebbla að hlusta á jólalög á meðan ég í myndarskap mínum húsfreyjast hérna um alla íbúð...:)

Það er nebbla þannig að ég er alveg rosa, rosa, rosa mikið jólabarn og löngu komin í jólafíling sko...!!;)
Og fannst svo tilvalið að skella jólatónum á fóninn á meðan ég þvoði þvottinn og græjaði morgundaginn...
Það er nebbla stelpuhittingur á morgun hérna hjá mér og ég ákvað að bjóða upp á dásemdar grænmetissúpu sem ég græjaði bara svona kvöldið áður í allri fyrirhyggjunni minni...;)

En já... jólin...
Þau eru að koma...:d
Vá hvað ég hlakka til...!!!
Mamma og pabbi ákváðu að bjóða okkur út til sín svo þau fengju nú að sjá okkur aðeins svona um hátíðarnar...
Æðislegt...!!!
Það ríkir mikil spenna á þessum bænum fyrir væntanlegri utanlandsferð en unglingurinn er nú þegar farin að spá í hvaða föt hún eigi að taka með sér út...;)

Við Sigurjón verðum bara tvö á aðfangadag að hafa það notalegt....:)
Rjúpur og kalkúnabringa verða á boðstólnum hjá okkur hjónaleysunum og svo verður örugglega kíkt í smá rúnt....:)

Jólagjafaspekúleksjónir eru að sjálfsögðu hafnar og ekki alveg komnar á hreint en það er sterkur leikur að græja þetta ekki allt í einu sökum svívirðilegra útgjalda...8|
En það er kominn einhver óskalisti og Ásta unglingabarn heimtar tölvu eða iPod... 
Jújú... maður þarf bara að fara í ólöglega starfsemi ef maður á að standa undir þessum kröfum barnsins...8|...;)

En þetta er nú allt gott og rosalega gaman...!!:)
Ég er svo þakklát fyrir fallega lífið mitt og ástfangin upp fyrir haus...!!!:)

Heyrðu já og svo er ég byrjuð að vinna...:)
Það hlaut að koma að þessu... haha... loksins og loksins...:)
Fékk vinnu í Ömmubakstri við að laufabrauðast fram að jólum...
Svo að ég og ástmaður minn erum saman allan sólarhringinn þessar vikurnar og ekkert slest upp á vinskapinn enn...;)

Svo var ég að kanna með skólann og komst að því að ég get sótt um 
2. nóvember í Fjölbraut Ármúla...:)
Stefnan er enn tekin á félagsfræði og ég hlakka mikið til...!!:)
Nú treysti ég Guði bara fyrir því að þetta fari eins og þetta á að fara...
...og að ég fái það sem ég vil...!! Híhí...;)

En já elsku fólk...
lífið er fallegt og gott...!!
Betra en ég hefði nokkurn tímann þorað að vona...!!!
...að hugsa sér að allt þetta sé í boði fyrir svona stelpu eins og mig...:d

Verum góð hvert við annað og þakklát fyrir það sem við höfum

Rósin kveður...

...þakklát í jólafíling...:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.08.2009 10:18:47 / Yrja82

Fallega tilveran mín...

Góðan og fallegan daginn til alls fallega fólksins...
Það er svona allskonar og ýmislegt sem hefur gengið á í fallegu tilverunni minni síðan ég update-aði upplýsingar á danskri grund...
Allt mjög jákvætt og spennandi... :)

Að kveldi sama dags og ég kom úr yndislegri dvöl í faðmi fjölskyldunnar flaug ég suður í borg óttans... 
...loksins...!!
Ég var sko búin að hlakka mikið og mikið til... :)
Það var farið í sumarbústað og helgin var alveg bara yndisleg í alla staði...
Að henni lokinni tók við vikudvöl 
...sem breyttist í 5 daga dvöl...
í Hlaðgerðarkoti... þar sem ég fékk að vera vitnisburður um að það er hægt að öðlast nýtt og fallegra líf og deila minni reynslu...
 Ég komst í betri tengingu við hvað ég vil gera, svona career wise, og tók þá afstöðu að skipta aftur yfir í upphaflegu ákvörðun mína um nám... 
svo að félagsfræði it is... :) 

En vegna fallegra breytinga í lífi mínu tók ég þá ákvörðun að fresta skólagöngu minni um eina önn og hefja nám eftir áramót...
Fjölbraut í Ármúla er að heilla hvað mest og ég treysti Guði bara fyrir því að ég fái inngöngu þegar að því kemur...
Já gott fólk...
Kellan er að fara að flytja í borg óttans og er ekkert hrædd...:)

Ég er nebbla orðin ástfangin...!!
Guð er svo góður!! og ég tipla bara með tánum mínum á gleði og þakklæti yfir þessu öllu saman...:)
En ég er sem sagt að fara norður á sunnudaginn og pakka niður og flytja...
það er fullt af tilhlökkun í mér og mér finnst ég vera stödd í mínu eigin ævintýri... 
Það er spennandi að breyta til og fara úr örugga, litla rammanum mínum á Akureyri... 
...sem er hefur verið yndislegur en nú finnst mér Guð vera segja mér og styðja mig í að gera eitthvað nýtt...

Uuu já... svona í lokin er skemmtilegt að deila því með ykkur að ég fór á Selfoss í gær til listamannsins Ragga Hauks og fékk mér tattoo... 
loksins og loksins er ég búin að setja yfir litlu köngulóna mína en ég fékk mér fallega rós sem ég er hrikalega ánægð með..!!:)

Þetta er orðið gott people...

Verum góð hvert við annað...

Hrúga af kærleik

Rósin kveður...

...þakklát...:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.07.2009 10:09:19 / Yrja82

Update og Danaveldi...

Sælt veri allt fallega fólkið...:)
Nú er orðið töluvert síðan síðast... 
eiginlega skömm að því að viðurkenna það en jú... ca. þrír mánuðir folks...
Það hefur ýmislegt gerst á þessum tíma... 
sumu ætla ég að deila með ykkur annað setur maður bara ekki á internetið...:)

Svona smá update...
Ég kom heim frá US and A í byrjun maí og var satt að segja pínulítið búin á því og algjörlega komin úr tengslum við Guð...
Maí var sem sagt mánuður andlegrar lendingar og tengingar...
þar sem að algjörlega þörf spjöll við Guð, hugleiðsla og sjálfskoðun skiluðu árangri...
...FJÚKK...!!

Ég flutti líka í nýja íbúð... hún er oggupons og alveg ofurkrúttleg...:)
Sótti um í VMA og fékk inngöngu...
...er að fara í hönnun og textíl í haust og hlakka mikið til...:)

Júní fór aðallega í að ná jafnvægi og finna "minn stað" í þessari tilveru... 
Partur af fallegu fjölskyldunni minni komu svo í lok júní...  
mamma, pabbi, Pétur og Kara Mist og prinsinn svaf upp í nánast alla fyrstu vikuna...
Yndislegt...:)

 6. júlí flugu mamma og pabbi aftur út til Dk og Ævar bættist í hópinn...
og ég, þessi forríka forréttindakona... 
fékk að hafa litlu skrímslabörnin og Æbba sokk hjá mér í þrjár vikur...:)
Það var snilld...!!
Við fórum saman í sund, bíó, kjarnaskóg, Brynju, út að borða og alveg hrúgu og helling...
Prinsinn hélt sér hrikalega busy við að spila fótbolta og á köflum sást litli kallinn sama og ekki neitt...
Við stelpurnar vorum öllu rólegri og meira heima við...
Ævar fór í ævintýraleit og hösl-leiðangra út á land allar helgar og kom þreyttur en sæll heim á sunnudögum... svo var hvílt sig og ekki farið of geyst fram að næstu helgi...
Þetta er ungt og leikur sér...:)

Ég byrjaði í Boop Camp, sem var stórskemmtilegt, þurfti að hætta því en lét að sjálfsögðu ekki deigan síga og hóf að fara í sund flesta daga...
Sem er dásamlegt... 
Syndi í ca. hálftíma og er svo sannfærð um heilunarmátt vatns að þetta er tvöföld ánægja...
Alltaf að græða...;)

Nú er kellan komin í Danaveldið í faðm allrar fjölskyldunnar og er að hafa það hrikalega gott...:)
Ég verð í 11 daga í dönsku sælunni... 
planið er að kíkja í Djurs Sommerland á laugardaginn og til Þýskalands á sunnudaginn en ég hef á hvorugan staðinn komið...
Þetta er spennandi...:)

Það er miklu meira sem mig langar að deila með ykkur en þetta er orðið gott people...

Verum góð hvert við annað...

Rósin kveður...

...sæl í Danaveldi...:)



» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 14:22:57 / Yrja82

Andlegur undirbúningur...

Góðan daginn fallega fólk...:)
Kellan klædd og komin á ról án klukku og löngu fyrir ræs... ekki í fyrsta skiptið síðustu vikur...:)
Ekki er það nú verra ef litli kroppurinn minn sér sig fært að komast af með minni svefn...
...það má gera ýmislegt með fleiri klukkutíma í sólarhringnum...:)
Nú brestur líka brátt á boot camp brjálæðið sem ég hlakka mikið til að byrja í og þá þarf ég að vakna klukkan hálf 6 þrisvar í viku svo að þetta er alveg bara fínasta upphitun...:)

Nú annað í fréttum á þessum fallega degi er að mamman mín kemur eftir þrjá daga...:d
Mikið hlakka ég til að sjá hana...!!!
Danska frúin ætlar að mæta í land tækifæranna með REMI súkkulaði og remolaði handa Kort hjónunum...:)
...en þetta eru evrópskar lystisemdir sem ekki fást í stóru Ameríku...
Nú er komið plan á þessa sex daga sem mamma verður hjá okkur...
...hvert verður farið og hvenær... 
Mall of America nottla fyrsti áfangastaður og ég er byrjuð að undibúa mig andlega fyrir verslunarferðina miklu í næst stæðsta mall í heimi...
Ég er ekki alveg "malltýpan" og utan þess að vera að huga að andlegri heilsu minni fyrir mallið mikla þá er góður skóbúnaður mikið atriði svo að ég sé fram á rosalega fjárfestingar til að vera nú vel búin...;)

Þegar mamma fer eru bara sex dagar í heimför hjá mér...
...ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða...!!!
Ég fer alveg rosalega snemma um morguninn svo að ég verð að kveðja fallegu skrímslabörnin kvöldið áður...
Vá hvað ég á eftir að sakna þeirra...
En það er margt spennandi framundan og núna nýlega bættist á ævintýrið sem líf mitt er...:)
Update á því síðar...;)

Þetta er orðið gott elskurnar...:)

Lífið er viðhorf... höfum það eins dásamlegt og við viljum...:)

Rósin kveður

...glöð og vel búin...:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 15:37:34 / Yrja82

Nýja könnunin...

Sælt veri fólkið...
í dag sem alla daga...:)

Allir endilega að taka þátt í nýju könnuninni hérna til hægri...;)

Erum við þakklát fyrir það sem við höfum...???

Erum við að gera eitthvað til þess...???

Sjáum við hversu mikið tækifæri lífið er...???

Eða erum við bara fúl og vanþakklát...???

 

Með kærleik...

 

Rósin...:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2009 19:35:23 / Yrja82

Oggublogg...

Jújú... það er um töluvert liðið síðan síðast...
ég fór nebbla í fýlu...:)
Var búin að skrifa stórkostlegt blogg og update undanfarinna viðburða en þegar ég ætlaði að birta stykkið hvarf bara allt fíneríið...
...pfff...:whut:

Það er alveg ruglað hversu ört tíminn rennur hjá...
svo hratt að það er varla að mér finnist ég vera viðstödd...
merkilegt...:)
Á morgun eru 5 vikur í heimferð og eins mikið og ég skemmti mér og nýt tímans hérna þá hlakka ég óneitanlega mikið til af fara heim...:)
Það eru svo mörg spennandi verkefni sem bíða mín heima...!!!:)
Þakklát, væmin og þakklát...:)

En héðan er allt gott að frétta...:)
Sambúðin gengur vel... herra og frú Kort eru góð við mig og sömuleiðis Kortskrímslin sætu...:)
Það hafa verið agnarögn af veikindum á bænum í kjölfarið á árstíðaskiptum og veðurbreytingum...
Þær flensur virðast vera alþjóðlegar og engin sleppur...:s

Um daginn var farið í dýragarð þar sem ég sá ljón og tígrisdýr, fleiri kisudýr og buffaló og svona hið ýmsasta...:)
Mjög gaman...:)
Nú er springbreak að ganga i garð hjá Bjöllaranum en við erum alveg orðin hinir mestu mátar og ætlum að hanga saman og eyða tímanum á hinn ýmsasta hátt í þessu fína break-i drengsins...:)
Litla Gussý er nottla með í þessum plönuðu og óplönuðu áætlunum...

Childrens Museum er mjög vinsælt en við erum búin að kíkja þangað einu sinni og planið að kíkja aftur very soon...:)
Þetta er safn fyrir börn á öllum aldri...
þrjár hæðir af alls konar skemmtilegheitum... Ágústu finnst skemmtilegast að sulla i vatninu og Birni finnst skemmtilegast að byggja...:)
Sem að kom sér einmitt ágætlega um daginn þar sem þetta tvennt er nálægt hvoru öðru og það var STAPPAÐ að einstaklingum af öllum stærðum og gerðum...
Ég fór sem sagt ein með krakkana i þessa marg umræddu ferð...
...sem hefði sennilega verið í lagi á venjulegum degi...
En ALLIR Ameríkubúar ákváðu að gera sér ferð þennan tiltekna dag... ýkjulaust...;) og Mary Poppins hérna illa búin á þvi eftir safnferðina eftirminnilegu...;)

Nú já og jújú...
Hún mammzan mín ætlar að kíkja á stóru stelpuna sína 24. apríl og vera í nokkra daga...
VÁÁÁÁÁ hvað ég hlakka til að sjá hana...:d
  Það verður yndislegt að eiga svona tíma fyrir okkur...!!!
Það hefur ekki komið til í ALLT OF langan tíma...!!!
Það verður komið svo gott veður þá að ég ætla að labba með mömmu um allt og sýna henni allar útsölurnar...:)
Annars gruna ég kelluna nú um nægjusemi og yrði ekki hissa þó að hún kæmi bara með tjald, svefnpoka og tannbursta og bæði mig vinsamlegast um að keyra sig í Mall of America og sækja sig að nokkrum dögum liðnum...;) 
Hlakka til að sjá þig mamma mín...:)

Aðrar fréttir eru að ég er búin að ákveða hvað ég vil læra og er að fara í skóla í haust...:d
Jújú... gellan ætlar að taka stúdentinn í félagsfræði með dash af íþróttum og ég hlakka svo til að byrja að ég ræð mér vart fyrir fögnuði...:d
Það poppuðu upp augnabliks áhyggjur af illviðráðanlegum tölvukaupum en Guð er svo góður að þær áhyggjur reyndust með öllu óþarfar...
Svo að áður en langt um líður verð ég stoltur nemi og tölvueigandi að leggja grunn að því sem mig langar að starfa í framtíðinni...:)
Trúi því ekki hvað ég er lánsöm stelpukona...:)

Þetta er orðið gott í bili...

Lífið fer eftir viðhorfum elsku fólk... verum þakklát fyrir það sem við höfum og sýnum hverju öðru kærleika...:)

Rósin kveður

...þakklát...:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 03:46:31 / Yrja82

Lítið, létt og oggu lúin...

Halló og hæ elsku fólk...:)
Þykir orðið tímabært að skella inn einu bloggi eða svo... svona í tilefni að því að ég er í gírnum...:)
Það er kannski ekki alveg satt...
er rosa mikið þreytt og lúin núna... svona heilbrigð þreyta sko...:)

Dagurinn í dag er búinn að vera notalegur þrátt fyrir þróttleysi sökum aldurshnignunar...;)
Gellan ég er svo svívirðilega og alveg hreint til fyrirmyndar að ég skellti í köku og cupcakes sem vakti að sjálfsögðu lukku...:)
Við litla Gússý erum búnar að hafa voða gaman og tókum fullt af myndum sem ég er að fara að setja inn...:)
Umbeðnar myndir af Korthjónunum fá að fljóta með svo að endilega látið ekki renna úr greipum ykkar þetta einstaka tækifæri til að skoða liðið...;)

 En vá hvað ég er rugl mikið þreytt... farin í lúllið áður en ég verð stjörf hérna...8|

Góða nótt elsku fólk og Guð veri með ykkur...:)

Endalaus kærleikur og krúsídúllur...:)

Rósin kveður

...oggu lúin...:)

Nýjar myndir inn í Bara dúllerí...:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 19:40:33 / Yrja82

Amerískt ævintýri...

Það er óhætt að segja að það hafi gengið á ýmsu elsku fólk og update löngu orðið tímabært...:)
Nánast sigið í tvo mánuði síðan kellan bloggaði síðast...:$
En þetta er dásamlegt og ég er hamingjusöm...:)
Reyndar búin að vera soldið veik... tók með mér íslenska flensu en til allrar lukku hefur mér ekki tekist að smita neinn enn...:)

Fann mér fund um daginn sem ég er búin að gera að föstum fundi og svo er líka búið að biðja mig að speaka áður en ég fer aftur heim...:)
Þetta er allt rosa skemmtilegt og spennandi...
Finnst þetta vera algjört ævintýri og enn ein gjöf Guðs til mín...:)
Ætli hlutirnir hérna og heima séu ekki jafn líkir og þeir eru ólíkir...:)
Kann svo sem ekki að gera neitt sérstaklega betri skil á því...:)
En það er nottla ekki að ástæðulausu sem Ísland er kallað litla Ameríka...;)

En þetta er allt ótrúlega kúl... svona á meðan mar fer ekki út í sum fáránleg lög og reglur í þessu ágæta landi...;)

Ég er nokkrum sinnum búin að sjá íkorna út í garði... sem mér finnst brjálæðislega ævintýralegt og kúl...:d 
Það búa kanínur undir palli hjá okkur og þvottabirnir í næsta nágrenni sem róta í ruslinu ef það fer ekki strax út í tunnu...:)
Daginn eftir að ég kom var fjárfest í korti í ræktina fyrir kellu og í kjölfarið byrjaði ég loksins að æfa eftir laaaaanga bið...:)
Hef ekki farið eins og ég vildi sökum flensufínerís en engu að síður byrjuð...
...alveg hrikalega gott...:)

Hvað vinnuna varðar þá ELSKA ég hana...!!!:d
Ég og Ágústa litla erum saman frá ca. 8 á morgnana og þangað til seinnipartinn...:)
Þessi 18 mánaða skottulús bræðir mann alveg og það er ekki á neinn hátt að virka sem getnaðarvörn að vera með svona baby allan daginn...
...Þvert á móti...
Það er allt klingjandi sem aldrei fyrr og ég prísa mig bara sæla að vera bara með tvo eggjastokka...
Annars svæfi ég sennilega ekki fyrir bjölluhljómi...:$...;)

Björn bangsi er nýorðin 6 ára það var að sjálfsögðu haldið teiti drengnum til heiðurs...;)
Hann er algjör krúsi og er soldið að kanna mörkin hjá þessari nýju gellu sem var varla komin inn úr dyrunum þegar hún fór að skipta sér af honum...;)
Drengurinn er óneitanlega mjög spurull og áhugasamur ungur maður og alls ekki alltaf sem mar hefur svör á reiðum höndum...:)
Risaeðlur eru líka stórkostleg ástríða og við erum einmitt að lesa í einni risaeðlubók þessa dagana...:) 

Hvað herra og frú Kort varðar þá eru þau voða góð við mig og sambúðin gengur vel...:)
 Ég hef alveg frjálsar hendur hérna og það er óneitanlega ótrúlega gott...!!!
Mér líður eins og heima hjá mér...:)

Enn hef ég ekki kysst neinn Kana þó það geti hugsanlega komið að því...;)
Það er einn óforskammaður gamall kall búinn að fara í fjörurnar við mig en ég hef ekki hugsað mér að hringja í kauða...!!!
Langar að kyssa einhvern allavega 20 árum yngri og töluvert laglegri...;)

Jæja fallega fólk... verum góð við hvort annað...:)

Rósin kveður

...ævintýragjörn akureyramær...:)

 (Uuuu já... var að setja inn myndir... heimahygg í USA...:)...)
   


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 16:33:32 / Yrja82

Smá og svo dreymandi í danaveldi...

Dásamleg og yndislegt og dásamlegt að vera til...:)
Það hefur óneitanlega gengið á ýmsu síðan síðast...:)
Kellan er farin að valhoppa um borg og bí og lífið verður æ yndislegra...:)
 
Nú eru bara þrír dagar í að keyrt verði í borg óttans og níu dagar í að ég hitti elsku fjölskylduna mína í Danmörku...:)
Tilhlökkunin er slík að ég kann ekki að lýsa henni...:d

Þetta skrifaði ég 9. desember ef ég man rétt...:) og ég ákvað að leyfa þessu að vera með...:)

Í dag er hinsvegar kominn 27. desember og gellan í jóladilli í danska veldinu og í faðmi fjölskyldunnar...:)
Ég reyni með Guði og eftir fremsta megni að halda mér í andlega gírnum... en það verður að viðurkennast að ég sakna fundanna og vina minna á dásamlega Íslandi...
Engin fundarsókn er í boði hérna í Grenaa um hátíðarnar þar sem sollis fínerí fer í jólafrí á þessari líka annars fínu dönsku grund...:)
En bæn og hugleiðsla er eitthvað sem mér ómögulegt að sleppa... það er að segja... get sosum staðið í stórræðum og sleppt því... en orðið þann daginn og með það sama alveg ómöguleg...:)
Tók einn svona antí-andlegan dag hérna um daginn...
hef beðið og hugleitt alla daga síðan og ekki þorað öðru...;)
Ég meina...
ekki kom ég til að gera fólkinu mínu lífið leitt og láta eins og andstyggilegur unglingur við mína kæru mömmzlu...:)

Get nottla ekki á neinn hátt sleppt því aðsegja ykkur að mig hefur dreymt og dreymt og dreymt hina undarlegustu drauma nótt eftir nótt síðan ég kom...
...vakna ringluð og rugluð hvern morguninn á eftir öðrum...
Og þar sem ég er þeirrar skoðunar að draumar séu endurspeglun á líðan og upplifanir okkar get ég ekki annað en spáð og skoðað...:)
Ég þykist svo sem vita hvurslags þetta er og reyni að treysta Guði þarna eins og annars staðar...
Þó að nottla þanna... eins og annars staðar... gangi það misjafnlega...:)

En yfir í allt annað...:)
Aðfangadagur var yndislegur...:d
Ida vinkona Köru Mistar borðaði með okkur grautinn í hádeginu og nældi sér í möndlugjöfina... stelpuskjátuskottan sú arna...:)
...ég missti mig nottla í grautnum af gömlun vana og lagðist á meltuna í hugleiðslu og steinrotaðist í allavega tvo tíma...:)
Gaman að því já...;)
Við borðuðum ekki jólamatinn fyrr en sjö á dönskum tíma til að vera samfó liðinu á klakanum og kysstumst og knúsuðumst sem aldrei fyrr þegar kirkjuklukkurnar á RUV hringdu inn jólin...:)
  
Við afkvæmin sáum að mestu um frágang eftir matinn og svo tók við dill í kringum jólatréð en þetta er danskur siður sem hefur verið tekinn upp á þessu annars... sem á að heita... íslenska heimili...:)
En íslenskir siðir og enn fremur íslensk tunga fer þverrandi og hefur blómarósin ég ekki undan að leiðrétta þetta nánast danska hyski...
sem mín ástkæra fjölskylda virðist vera að breytast í á ógnarhraða...;)
Þrátt fyrir þessa hneysu þá fer ást mín á þeim ekki á neinn hátt þverrandi og get ekki annað en brosað út í annað...;)

Eftir jólatrésdill og söng á íslenskum jólalögum röðuðum við okkur í stofuna og við tók hraðasti pakkalestur sem ég hef nokkurna tímann orðið vitni af...:)
Pétur prins sá um að lesa á og afhenda pakkana...:)
...og svo mikil var spennan að fara að opna gersemarnar að það var hlaupið á milli afhendinga og jólatrésins og stundum með tvo pakka í einu...;)
Ekki lengi gert sem lítið er...;)

Við fórum okkar hefðbundna hring í pakkaopnun sem fer svo fram að yngsta skrímslið byrjar og svo er farið hringinn...:)
Litla englastelpan hún Kara Mist byrjaði sem sagt ...:)
Svo mikið finnst mér þetta segja sig sjálft að ég neita að gefa frekari skýringar á þessum hefðbundna hring...;)
Ég var í öllu falli innilega ánægð með allar mínar gjafir og þakklætið í hjarta mér var svo einlægt að tvisvar á þessu fallega kvöldi runnu tár niður kinnarnar á mér...:)

Frá yngstu prinsessunni í fjölskyldunni fékk ég hið ýmsasta sem allt hafði hún skapað sjálf...
...klár og hæfileikarík þessi litla skotta...:d 
 Vantar skohhh ekki montið í stóru systur...;)
Ein sköpunin er fuglahús og önnur fór beint um hálsinn á mér og hefur verið þar síðan...
...ótrúlega pæjulegt hálsmen...:)
Fékk líka rosa flotta mynd sem hún teiknaði sjálf og blátt og gyllt skartgripaskrín...:)

Nú það klikkar ekki að kellan er ævinlega pæjuð upp um jólin og þessi engin undantekning...:)
Ég fékk buxur og fullt af bolum og peysu og tvo klúta og kjól og handstúkur og nærföt af hinu ýmsasta tagi...;) og ég veit ekki hvað og hvað og hvað...:)
Orkusteinaarmband og maska og hugleiðsludisk og ef ég gleymi einhverju þá biðst ég afsökunar og tek fram enn og aftur hversu ánægð ég var með allt sem ég fékk...:)

Ást, knús og innilegar þakkir til ma, pa og skrímslanna, allra stelpnanna minna og elsku Haffa míns, ömmur og afar fá nottla kossa og risaknús og nú er ég alveg að byrja að hljóma eins og ég hafi verið að fá óskarinn...:)
...ferlega korný svo að ég ætla að hætta núna...;)

En já...:)
...elsku Eydís sæta frænka og Hilmar hennar ektamaður komu hingað í fyrrakvöld með krúttlegu skrímslastrákana sína...:)
Stendur til hittingur á mánudaginn með tilheyrandi áti á einhverjum lystisemdum og án efa spjalli á hinu ýmsasta og alls konar...:)
Ég hlakka óneitanlega oggudoldið til að hittast en þau hjónin eru svo vel af Guði gerð að það alveg lekur af þeim kærleikurinn...:)
 
Verð líka að segja ykkur að á hverjum degi er ég knúsuð í bak og fyrir með kossum og knúsum... kelidýrið er elsku Peddinn minn...:)
Reglulega fæ ég að heyra sagt með einlægri fallegri rödd "ég elska þig" og mikið er dásamlegt og mikil gjöf að vera fá að vera á þeim stað að geta... ekki bara gefið... 
heldur líka upplifað allan þennan kærleik...:)
...Takk Guð...:) 
Hann er sama kelidýrið og stóra systirin og við spjöllum mikið saman um alls konar hluti þegar vð erum að fara að kúra okkur saman á kvöldin...:)  

En þetta er orðið gott í bili...:)
Hrúga og hellingur sem ég ætlaði að segja ykkur fleira en kellan er komin með hausverk og er að spá í að huga að einhvers konar næringu í kroppinn minn...:)

Meiningin er að láta ekki líða aftur svona langt á milli blogga...:)
...þetta er nottla hneysa og klárlega til skammar...:)
En svona ykkur að segja er ég orðin tölvulaus heima hjá mér en sosum ekkert því til fyrirstöðu að valhoppa á bókasafnið til að úthella hugsunum mínum yfir ykkur...;)
...já og upplifunum mínum og spekúleksjónum á lífinu og gangi þess...;)

Njótum þess að vera við og vera núna... við vitum ekki hvað er framundan...:)

Sýnum ást og umhyggju öllum dásemdarverum allar dásemdarverur...:)

Jólaknús og endalaus kærleikur...:)

Rósin

...dreymandi í danaveldi...:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 16:49:04 / Yrja82

Ahhhh... loksins lifandi...

Halló, hæ og halló dásamlega fólk...:)
Það er orðið doldið síðan ég bloggaði en síðan síðast er ég búin að ná mér í töluvert magn af svefni og dvelja mikið við andlega iðju...:)
Yndislegt svo ekki sé nú meira sagt...:)
En það er nú þannig að með auknum svefni og betra geði...:) hef ég markvisst verið að taka í gegn andlegu hliðina...:)
Allir dagar byrja að venju á bæn og loksins og loksins er ég byrjuð aftur að hugleiða...:)
Einu sinni og tvisvar á dag síðustu daga og ég er strax orðin öll önnur...:d
Ég kveiki mikið á kertum og hef það svona huggulegt þegar ég er heima...:)
Huggulegt er ekki á neinn hátt það sama og að liggja í leti... huggulegt eins og í notalegt...:)
 ...heimilisverkin eru orðin auðveldari og sjálfsagður og eðlilegur partur af því að vera fín húsfreyja í þorpinu...;)
En það var orðið doldið erfitt að vera til og kvöð að sinna þessum "eðlilegu" hlutum...
Gott að vera farin að sofa aftur...:)

Vinkona mín er alltaf að segja keðja sé aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn...
...og það er einmitt akkuratt þannig...:)
Og svona basic hlutir eins og að borða og sofa skipta svo ótrúlega miklu máli...!!!
Kona verður rugluð í hausnum, döpur og þung... og ég upplifði líka ótta, kvíða og bara almenna fælni...

Næst á dagskrá er að hætta að eyða svona miklum tíma í tölvunni...:)
Fæ eiginlega samviskubit þegar ég heyri suðið í henni...:s
 
 Skemmtilegt að segja frá því að ég breytti um hugleiðsluaðferð og nota núna sjálfsdáleiðslu...:)
Sem er rosa magnað og skemmtilegt...:)
Þetta er eiginlega blanda af slökun, hugleiðslu og heilaþvætti...:)
Geggjað stöff...;)

Ég horfði á The Secret um daginn og varð alveg ástfangin...:)
Í mínum eyrum og huga er það ótrúlega lógíst að auðvitað höfum við mest um þetta að segja sjálf...:)
Það er að segja...
Ég kýs að bjóða Guð velkominn inn í daginn minn og líðan mín, leiðirnar sem ég vel og dagurinn eftir því...:)
Þegar ég geri það ekki er líðan mín, leiðirnar sem ég vel og dagurinn eftir því...:)
Maður gefur frá sér ákveðna orku og fær eins orku frá umhverfinu og maður gefur frá sér...:)
Hvernig bregst maður við hressu og skemmtilegu fólki...???
Hvernig bregst maður við kærleik...???

Hvernig bregst maður við neikvæðni og tuði...???
Og ekki bara það hvernig maður bregst við út á við... hvernig líður manni eftir að hafa verið innan um einhvern veginn og í alls konar umhverfi...???

Svo að ég hófst strax handa við að skrifa niður fallega hluti um mig og eitthvað sem ég vil að verði að veruleika...:)
Rúmlega A4 blað gott fólk...:)
Aþþí ég er yndisleg sköpun Guðs...:)
Ég hef lesið þetta upphátt fyrir mig 1-2 á dag síðan og þetta er dásamlega gott...:)
Og fyrir þá sem ekki trúa á þetta þá er staðreyndin sú að það er ekkert að því að byggja sig upp andlega og auka sjálfstraust...:)
Og þetta er góð aðferð til þess...:)
Það er mikill misskilningur að maður sé egósentískur montrass ef maður getur sagt fallega hluti um sjálfan sig við sjálfan sig og aðra...:)
Flestir virðast vera í minnstu vandræðum með að nefna hvað mætti betur fara og hvaða ókostum þeir eru búnir en roðna og blána ef þeir eru beðnir um að segja hversu yndislegir þeir eru...
Og það sem er ennþá sorglegra...
...sumum finnst alls ekki neitt fallegt um sig...

Við erum ÖLL yndisleg sköpun Guðs...
...ekki gera lítið úr því sem er þitt...!!!:)

Annað er að það styttist óðum í að ég hitti elsku fjölskylduna mína...:d
...17 DAGAR...:d:d:d
Ég talaði við Gunnar bróðir áðan en hann verður fjarverandi þessi jólin...:cry
Þó að hans verði auðvitað sárt saknað þá stafar fjarvera hans af því að hann er að fylgja eftir stórkostlegri ákvörðun sem mun vonandi breyta lífi hans...:)
Það var grunnt á tárunum þegar ég talaði við hann og enn á ný upplifði ég hvað ég er langt frá fjölskyldunni minni...
Hefði svo gjarnan viljað vera til staðar fyrir Gunna minn á þessum ógnvekjandi tímamótum í lífi hans...
Ég veit nákvæmlega hvað hann er að upplifa og er svo óendanlega stolt af litla bróður að stíga inn í ótta sinn og láta þessa ákvörðun verða að veruleika...:)
...Ég elska þig endalaust og endalaust mikið elsku Gunni minn...!!!!!!

Dvölin í Dk verður þó engu að síður dásamleg og ég hlakka mikið til...:)
Við mamma... já og Eydís frænka...:) erum að telja niður dagana og það verður sko notið samverunnar...:)

Þetta er orðið gott í bili...:)

Komum auga á hversu dásamleg við erum...:)

Rósin kveður

...loksins lifandi...:)



» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 05:29:13 / Yrja82

Ekki mjög andleg...

Þegar kona... og jafnvel maður... er alltaf svona andvaka getur reynst erfitt að vera mjög andleg(ur)...
Ég er að fá að upplifa þetta mjög sterkt og það að fara á hnén er bara ekki eins sjálfsagt og auðvelt... þó að ég geri það... og það er "venjulega"...
Og það er ekki bara að ég fjarlægist Guð...
...sem er reyndar lykilatriði fyrir mig til að halda lífi...
Það er líka það að ég er ekki jafn vel í stakk búin til að gefa áfram það sem ég hef öðlast...
Ég upplifi þyngsli og depurð, sloppurinn er gjarnan það sem er fyrir valinu fram eftir degi, jákvæðni og kærleikur...
...sem ég á alla jafna svo auðvelt með...
virðist ekki vera mér jafn auðvelt og ég er alltaf þreytt og dofin og hálfvönkuð...:|

Ég hélt í kvöld að komandi nótt væri nóttin sem ég fengi loksins almennilegan svefn...:)
Sofnaði næstum því á fundi áðan eftir að hafa sofið lítið sem ekki neitt síðan þar síðustu helgi...
Og þegar ég kom heim dreif ég mig upp í rúm og var sofnuð fyrir hálf ellefu...:)
Ég var vöknuð aftur rúmlega eitt...:(
og núna... fjórum tímum seinna...
er ég enn vakandi, búin með 7undu seríuna í Friends og sé það að ég verð að hringja í lækninn minn á morgun og fá svefnlyf...
Mér er alveg meinilla við að þurfa að sækja þá hjálp en einhverjar 6 solleis hafa endst mér síðan í júní og kláruðust um daginn...
Ég bara get ekki verið endalaust andvaka...!!!
Er skíthrædd um að ef þetta heldur áfram og ég held áfram að missa tengslin við Guð...
...já og veruleikan...
að ég muni detta íða...
Það er ekkert í öllum heiminum sem ég hræðist jafn mikið og það og staðreyndin er sú að maður tekur ekkert töffarann á það...!!!
Skiptir engu máli hvað ég er klár og vitiborinn um allan alkóhólisma í heiminum...
...og hversu mikil valkyrja ég er...
Þetta er eitthvað sem ég á ekki séns í...!!!

Ég er alls ekki að segja að ég sé á leiðinni á fyllerí...
...hugurinn er ekki þar og því fer fjarri...
En ég er skelfingu lostin við hvað gæti gerst ef þetta heldur áfram...!!!

Þetta er orðið gott þessa nóttina...:)

Hugsum til hvers annars með kærleika og hlýju elsku fólk...:)

Rósin kveður

...ekki mjög andleg...

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 04:57:12 / Yrja82

Sakna litlu systur...

Ég ætla að segja ykkur stuttlega frá því að ég er andvaka...
...ok...
Ég er andvaka...

Þá er það komið... stutt og laggott...:)

En svona í alvöru...
ég er alveg búin á því en svefn er samt eins og fjarlægur draumur í augnablikinu...:(
Þetta er búið að vera svona núna í á níunda sólarhring og er... satt að segja... orðið doldið þreytt...
Búin að vera að horfa á Friends...:)
...sem er nottla gargandi klassík...!!!
Er hálfnuð með 7undu seríuna og er líka með áttundu og níundu...
svo að mér leiðist allavega ekki á meðan...:)

Var einmitt að horfa á þátt þar sem Rachel verður þrítug og er ekki hrifin af þróun mála...:) og mér varð hugsað til þess hversu skelfingu lostin ég var við að verða 26...:)
Díses hvað ég veit hvernig Rachel líður...:)
En það er ótrúlega kúl að núna hlakka ég bara til að eiga næst afmæli...:)
Þetta er svona ótti sem maður kemst ekki hjá því að stíga inn í...
(sem betur fer... hefði annars pottþétt bara sleppt því og væri ennþá 25... sem að bara fer mér ekki eins vel og að vera 26 ára...;)...)
...og af því að ég neyddist til að stíga inn í þennan algenga en þó ekki mjög veruleikatengda ótta...:) sá ég að það er svona bara stórkostleg að verða árinu eldri...:)

Það er önnur ung kona í fjölskyldunni minni sem er að fullorðnast...
Fallega litla systir mín hún Kara Mist...:)
Systa elskar þig ástin mín...!!!:)
Hún er að breytast í unga konu... skvísu... á ógnarhraða...!!!
Ég... sem langaði alltaf svo í litla systur... sinnti því hlutverki ekki neitt í mörg ár að vera sú sem litlan gat leitað til...
í öllum þessum strákahóp sem við eigum...:)
Og ég er að átta mig á því að litla yndislega systir mín...
sem ég grét úr fögnuði og hamingju yfir þegar hún fæddist...:)
...er byrjuð að ganga í pæjufötum í pæjumerkjum, hún á kærasta og er byrjuð að fá geðvonskuköst vegna óhóflegs hormónaflæðis og algengra veikinda sem kallast unglingaveikin...:)
Og auðvita elska ég öll systkini mín jafn endalaust mikið og sakna þeirra allra gríðarlega...!!!
En strákarnir hafa hvorn annan og skilja ekkert í því sem gengur á hjá okkur stelpunum á þessum aldri...
...ekki frekar en við í þeim...
Hún hefur nottla mömmu en ég hef grun um að það sé ekki eins og ég finn að fjarlægðin er alltof mikil og ég vildi að hún gæti bara komið til mín þegar hún vildi...:)
Við gætum talað um stelpumál sem strákum finnst halló og bara systrast saman...:)
Og ég er svo mikið kjánakrútt að ég er byrjuð að tárast af því að tala um þetta...:)

Ég fer samt út eftir 24 daga og mikið verður sá tími nýttur vel...!!!

Ætla að hætta núna...
áður en ég fer að háskæla hérna...:)

Ekki vera góð með okkur... sjálfsagðir hlutir eru ekki til...!!!:)

Rósin kveður

...saknar litlu systur...

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 01:18:31 / Yrja82

AfmælisRós... :D

Ár númer 26 og mér líður ekkert eldri og er rosa hamingjusöm með þetta allt saman...:)
Búin að fá einn afmælissöng nú þegar og kveðjunum rignir inn á fésbókinni...:)
...VEIIIIIIIII...:d
Ég elska að eiga afmæli og að vera afmælisRós...:d
Hlakka til að verða 27...;)

Mér líður eins og lítilli stelpu...:)
...ræð mér varla fyrir kæti...:)
Eins og ég var búin að kvíða fyrir þessum degi...:)

Svona getur þessi stelpukona nú verið kjánaleg...
rígfullorðin manneskjan...;)
Að kvíða fyrir svona merkilegum degi... meiri vitleysan...:)

VEIIIIIII......:d

Ég á ammæl´í dag
 
ég á ammæl´í dag
 
ég er ammælisRós í daaaaaaaag
 
ég á ammæl´í dag.....:d:d:d

Góða nótt og ljúfa drauma elskurnar...:)

AfmælisRósin kveður

...26 ára stelpukona...;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 05:49:29 / Yrja82

Með þreytuhroll aftan á hnakkanum...

Ég er var að sprikla í gær og er alltaf að leggja aðeins meira á mig með hverju skiptinu...:)
Eðlilega... þannig á þetta að ganga fyrir sig svo kona (aþþí ég er kona) sjái nú einhvern árangur...:)
En já...
...og gellan er með strengi í botninum, lærunum og náranum...
Sem er stórkostlegt þegar ég er að fara á milli staða... sem í þessu tilfelli eru eldhúsið og stofan, stofan og eldhúsið...;)
Já maður stendur sko í stórræðum...;)
En þó að strengir vekji ekki  líkamlega vellíðunartilfinningu þá finnst mér þeir góðir...:)
Verð ánægð með að vera loksins byrjuð aftur og finnst ég voða dugleg og svona...;)
Svo er nottla málið að nýta hvert skref sko...:)
Vera meðvitaður um líkama sinn... spenna rassinn í hverju skrefi, lyfta löppunum (ekki ganga eins og þessi ungdómur gerir, alltaf hreint með buxurnar á hælunum...;)...) spenna magan og svona...:)
Nota bene... ég geri þetta og nenni þessu ekki alltaf... :)
En er allavega hæstánægð með þetta allt saman...:)
Og nottla líka bún að vera að taka mataræðið í gegn...:)
Sé strax breytingu... tæp 5 kíló farin og ég er farin að passa í gallabuxurnar mínar...:)
Ekki að það sé aðalatriðið...
mér er líka farið að líða mikið betur...:d
Hitt er bara bónus...

...stórkostlegur bónus...;)

Þetta var skrifað síðasta föstudag en ég er búin að vera tölvulaus og mikið vatn runnið til sjávar síðan umræddan röstudag...:)
Svo mikið að ég og mitt skammarlega... en þó um leið merkilega... minni höndlar ekki að muna allt þetta fimm daga upplýsingamagn...
...En ekki flæði...;)
Allavega...
Klukkan er orðin eina mínútu í fimm á aðfararnótt miðvikudags og gellan er jafn glaðvakandi og leðublaka um miðjar nætur...!!!8|
Ef ég vissi ekki betur mundi ég halda að andvaka þessi stæði af neyslu örvandi efna en ég hef ekki einu sinni fengið mér svo mikið sem kaffi síðan ég vaknaði klukkan níu í morgun...
...eftir djókstuttan svefn...8|
Svo að já...
í stað þess að liggja sofandi í fallega tekkrúminu mínu er ég að blogga og uppdate-a... eða ekki... viðburði liðinna daga...:)
Ekki segja við mig... "Af hverju leggstu ekki bara upp í rúm...??? Sofnar sennilega um leið og þú leggst á koddann"
...eða...
"Liggðu bara í smá stund... áður en þú veist af ertu komin í draumaheiminn"
Ég er sko búin að liggja og liggja og liggja og hugleiða og biðja og kúra með kisurnar og standa upp og leggjast aftur og byrja á sömu rútínu aftur....
En ég hlýt nú að sofna einhverntímann...:s

Að undanskildum svefnruglinu þá er þetta allt að koma og ekkert endilega í rólegheitum finnst mér...:)
Og ég get ekki kvartað undan öðru...
þrátt fyrir kröppu kreppuna... með kryppuna...:)
Er að setja inn nýjar myndir af miss Blogg as we speak...;)
Öllu hressari á þessum myndum og algjör ofurskvísa...;)...:)
Er að pósa og gellast inn á baði í stórkostlegu einkapartýi þar sem ég er eini gesturinn og ekki þörf á fleirum þar sem... eins og fyrr segir... gellan er orðin svo hress...;)

Ég brá mér frá til að brasa í þessum myndum og það er eitthvað bilað myndastöffið hjá blogcentral svo að ég verð að skella þessu inn tomorrow bara...:)
Þið haldið ykkur bara fast á meðan og passið að slasa ykkur ekki...:)
Ég finn fyrir tilhlökkun ykkar og spennu aftan á hnakkanum... svona gæsahúð sko...:)
Ekki ósvipað og þegar draugar eiga leið hjá... miðað við lýsingu litla krúttans í The Sixth Sense...:)
En kannski er ég líka bara ósofin og með þreytuhroll...
...það skal þó takið fram að ég sver ekki fyrir neitt...
Veit að ykkur hlakkar til að sjá myndir úr einkapartýinu margfræga...;)
Hvernig veit ég þetta...???

Hvur veit nema heimasætan sé orðin skyggn og gæsahúðin komin til að vera...8|
Muahahahahahahahahaha...:klikk:

Díses hvað ég vona að ég nái að sofna á eftir...!!!
Er að fara í viðtal í skólanum eftir smá stund...:)
Þið vitið hvernig augun á manni verða þegar maður vakir svona endalaust...:s
Hahahahahahaha...
vona að ég sofni ekki áður en að viðtalinu kemur...:)

Jæja
nú slæ ég botninn í þetta þreytuhjal yndislegu einstaklingar og dásemdarverur...:)
Góða nótt elskurnar...:)

Rósin kveður

...með þreytuhroll aftan á hnakkanum...:)

P.S. Myndirnar eru komnar inn...:) Inn í Einkapartý...;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Miss Blogg... ;)
Litrík og skemmtileg bredda, kærleiksrík, ákveðin, reynslunni ríkari og fleira og fleira... :) Ég heiti Sigurrós Yrja og er 27 ára going 28... Rækt við sál og líkama, tónlist og hvers konar sköpun, fjölskylda og vinir algjört forgangsatriði, vera fylgin og trú sjálfri mér og margt miklu meira... :) Sjá liti og finna lykt eru eitt það yndislegasta sem ég veit... :) Að fá að vera þátttakandi en ekki áhorfandi... ahhh... gott að vera til... :)
Klukkan
Könnun
Ertu farin að hlakka til jólanna...???
Jahhá... ég ELSKA jólin...!!! :D
7 atkvæði

Tjahhhh... neeeiiiii...
0 atkvæði

Veistu ekki að það eru tveir mánuðir í jólin maníska fíflið þitt...?!?!?!?!?!
0 atkvæði

Uuuu... nautzzzz...!!!!!!!!!!
1 atkvæði

Jájá... alveg byrjuð/aður að spá í jólagjöfum... :)
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 9
Dagsetning
28. janúar 2012